Um okkur
Fiskbúð á horninu síðan 1947
Fiskbúðin Sundlaugavegi er ein elsta fiskbúð landsins og hefur afgreitt trygga viðskiptavini um ferskan fisk í sama húsnæði síðan 1947.
Frá handvagni að horninu
Mýrkjartan Rögnvaldsson hafði verið skipstjóri á Akureyri áður en hann flutti suður til Reykjavíkur árið 1930. Hann varð sér fljótlega úti um handvagn og seldi fisk við Steinbryggjuna, sem lá í framhaldi af Pósthússtræti. Síðar opnaði hann fiskbúð við Laugaveg og ók um nærsveitir Reykjavíkur á vörubíl með fisk og brauð. Til að láta vita af sér blés hann í þokulúður.
Skömmu eftir stríðslok opnaði Mýrkjartan fyrstu fiskverslunina í Laugarneshverfi, í bragga norðan við Laugarnesskóla. Hann fékk síðan leyfi til að reisa tvílyft íbúðar- og verslunarhús með rishæð á horni Sundlaugavegar og Gullteigs. Þar varð Fiskbúðin Sundlaugavegi 12 til.
„Fiskbúðin Sundlaugaveg 12 … hefir daglega á boðstólnum alls konar fisk. Fyrsta flokks frysti- og kælitæki, sem er trygging fyrir vandaðri vöru. Opin allan daginn. Látið ekki hjá líða að líta inn og reyna viðskiptin. Fljót og vönduð afgreiðsla.“
Nýir eigendur og nýir réttir
Í nýja húsinu var gott vinnurými með kæli baka til, og æ fleiri viðskiptavinir vildu fá fiskinn verkaðan og tilbúinn til eldunar. Mýrkjartan rak búðina fram á miðjan sjötta áratuginn. Þá tók Guðmundur Kristjánsson við og rak hana fram undir 1980, þegar Svanberg sonur hans tók við.
Svanberg færði búðina í nútímalegra horf. Kæliborð kom í afgreiðsluna svo fiskurinn sást, og úrvalið jókst með niðursuðuvörum, rúgbrauði og plokkfiski. Stærsta breytingin voru þó tilbúnu fiskréttirnir, til dæmis ýsubitar í karrýsósu í álbakka sem fóru beint í ofninn. Þeir festu sig fljótt í sessi.
Hluti af hverfinu
Ýsan seldist mest, en viðskiptavinir keyptu líka þorsk, lúðu, steinbít, saltfisk, kinnar, gellur, hrogn og lifur. Salan fylgdi árstíðunum: hrogn í byrjun árs, grásleppa og rauðmagi á vorin og skata fyrir Þorláksmessu.
Bræðurnir Þórður og Steingrímur Ólasynir ráku búðina um árabil. Í viðtali við þá í Morgunblaðinu árið 2000 kom vel fram hversu mikil félagsmiðstöð fiskbúðin var í hverfinu. Búðin hefur einnig selt fisk í heildsölu til mötuneyta og veitingahúsa.
Í dag
Fiskbúðum hefur fækkað mikið með breyttum neysluvenjum og samkeppni frá stórmörkuðum. Fiskbúðin á Sundlaugavegi hefur haldið velli með áherslu á ferskt hráefni og mikinn fjölda tilbúinna rétta. Hún er eina verslunin sem hefur fylgt húsinu óslitið frá upphafi og hefur nú lagt alla jarðhæðina undir sig.
