Ferskur fiskur
Fersk bleikjuflök og klassísk ýsuflök, fyrir tvo, fjóra eða sex.
Sjá ferskan fiskFiskbúð í Laugarneshverfi síðan 1947
Ferskur fiskur, ljúffengir fiskréttir og úrval af girnilegu meðlæti. Pantaðu á Pikkoló eða líttu inn til okkar á Sundlaugavegi.
Fyrir tvo · 600 g2.990 kr.
Góður matur, einföld eldamennska.
Ferskur þorskur baðaður í einstaklega ljúffengri lúxusmarineringu með villisveppum, sveppum, bankabyggi, lauk og steinselju. Gríptu með ferskt hrásalat og kartöflusmælki og töfraðu fram fyrsta flokks máltíð.
Réttur fyrir tvo, verð frá 2.750 kr.
Sjá alla réttinaEldaðu ferskan fisk frá grunni eða veldu tilbúinn fiskrétt sem fer beint í ofninn.
Fersk bleikjuflök og klassísk ýsuflök, fyrir tvo, fjóra eða sex.
Sjá ferskan fisk
Tilbúnir í ofninn eða loftsteikingarpottinn, allt frá teriyaki laxi til klassísks plokkfisks.
Skoða fiskréttina
Bættu meðlæti við pöntunina á Pikkoló.
Nú getur þú pantað uppáhaldsfiskinn þinn og fiskrétti og sótt í næstu Pikkolóstöð.
Pöntunarfrestur er til miðnættis daginn fyrir afhendingu.
Allar pantanir eru tilbúnar til afhendingar fyrir kl. 16:00, alla virka daga.
Þú færð SMS með aðgangskóða um leið og pöntunin er klár og sækir þegar þér hentar.
Veldu afhendingarstað og dag á Pikkoló þegar þú pantar.
Strjúktu til hliðar
Verð og framboð geta breyst. Sjá allar upplýsingar um réttina.
Réttur vikunnar
Ferskur þorskur í bragðmikilli villisveppamarineringu með byggi, lauk, sveppum og steinselju.
Fyrir fjóra (1 kg) 4.790 kr. · Fyrir sex (1,5 kg) 6.880 kr.
Panta á Pikkoló
Fiskréttur
Lúða í silkimjúkri trufflumarineringu með sveppum, lauk og spínati. Fljótleg og bragðmikil veislumáltíð.
Hafðu samband um verð og framboð.
Spyrja um framboð
Fiskréttur
Lax í bragðgóðri teriyaki-sósu, toppaður með sesamfræjum. Bestur á pönnu eða grilli.
Fyrir fjóra (1 kg) 5.850 kr. · Fyrir sex (1,5 kg) 8.400 kr.
Panta á Pikkoló
Fiskréttur
Langa í grískri marineringu með döðlum, fetaosti, kirsuberjatómötum, perlulauk og spínati.
Fyrir fjóra (1 kg) 4.650 kr. · Fyrir sex (1,5 kg) 6.670 kr.
Panta á Pikkoló
Fiskréttur
Ferskur þorskur marineraður í steinselju, papriku, kirsuberjatómötum og ögn af hvítlauk. Léttur réttur fyrir alla fjölskylduna.
Fyrir fjóra (1 kg) 4.770 kr. · Fyrir sex (1,5 kg) 6.850 kr.
Panta á Pikkoló
Fiskréttur
Fjölskylduréttur í mjúkri og mildri kókos- og karrýsósu. Tilvalinn í ofninn eða loftsteikingarpottinn.
Fyrir fjóra (1 kg) 4.400 kr. · Fyrir sex (1,5 kg) 6.330 kr.
Panta á Pikkoló
Fiskréttur
Ekta klassískur plokkfiskur eins og amma gerir, tilbúinn í ofninn. Dásamlegur með volgu rúgbrauði og smjöri.
Fyrir fjóra (1 kg) 4.430 kr. · Fyrir sex (1,5 kg) 6.370 kr.
Panta á Pikkoló
Ferskur fiskur
Fersk og ljúffeng bleikjuflök á grillið, pönnuna eða í ofninn. Mildur og safaríkur fiskur.
Hafðu samband um verð og framboð.
Spyrja um framboð
Ferskur fiskur
Klassísk ýsuflök, ekta heimilismatur kynslóð fram af kynslóð. Passa með kartöflum, smjöri og rúgbrauði.
Fyrir fjóra (1 kg) 5.390 kr. · Fyrir sex (1,5 kg) 7.750 kr.
Panta á Pikkoló
Fiskbúðin Sundlaugavegi hefur afgreitt trygga viðskiptavini um ferskan fisk í sama húsnæði síðan 1947. Hún er eina verslunin sem hefur fylgt húsinu óslitið frá upphafi.
„Látið ekki hjá líða að líta inn og reyna viðskiptin. Fljót og vönduð afgreiðsla.“
Mýrkjartan Rögnvaldsson, fyrrverandi skipstjóri á Akureyri, flytur til Reykjavíkur og fer fljótlega að selja fisk af handvagni við Steinbryggjuna.
Fiskbúðin Sundlaugavegi 12 verður til í húsinu sem Mýrkjartan reisti á horni Sundlaugavegar og Gullteigs.
Svanberg tekur við af föður sínum, Guðmundi Kristjánssyni, setur kæliborð í afgreiðsluna og innleiðir tilbúnu fiskréttina.
Búðin hefur lagt alla jarðhæðina undir sig, með áherslu á ferskt hráefni og fjölda tilbúinna rétta.
Við sérhæfum okkur í að útvega fyrsta flokks hráefni fyrir skóla, mötuneyti og veitingastaði um allt land.
Við leggjum áherslu á ferskleika, góða þjónustu og sanngjarnt verð. Hafðu samband og fáðu tilboð sem hentar þínum rekstri.
Á horni Sundlaugavegar og Gullteigs í Laugarneshverfi.
| Mánudagur | 10:00–18:30 |
|---|---|
| Þriðjudagur | 10:00–18:30 |
| Miðvikudagur | 10:00–18:30 |
| Fimmtudagur | 10:00–18:30 |
| Föstudagur | 10:00–18:00 |
Hringdu fyrir upplýsingar um helgar og frídaga.