Fara beint í efnið
Sundlaugavegi 12, Reykjavík Sími 562 0222 Mán–fim 10:00–18:30 · Fös 10:00–18:00
Velja rétti

Pantað á Pikkoló

Réttir og verð

Ferskur fiskur, tilbúnir fiskréttir og meðlæti. Veldu úr réttunum á Pikkoló og sæktu í næstu Pikkolóstöð. Framboð getur verið breytilegt.

Verð á Pikkoló var yfirfarið 26. október 2026. Endanlegt verð, stærðir og framboð birtast við pöntun. Fyrir upplýsingar um ofnæmisvalda, hafðu samband við okkur.

Fiskréttir

Villisveppaþorskur í eldföstu móti, með kartöflum, tómötum og sítrónu

Réttur vikunnar

Villisveppaþorskur

Ferskur þorskur í bragðmikilli villisveppamarineringu með byggi, lauk, sveppum og steinselju. Ljúffeng og næringarrík máltíð þar sem mildur þorskur og ríkulegt villisveppabragð njóta sín til fulls.

Gott með: salati, kartöflum eða fersku brauði.

Verð

Fyrir tvo · 600 g
2.990 kr.
Fyrir fjóra · 1 kg
4.790 kr.
Fyrir sex · 1,5 kg
6.880 kr.

Eldun

Ofn
180°C · 15–20 mín.
Loftsteikingarpottur
180°C · 12–15 mín.
Panta á Pikkoló
Trufflulúða með sveppum og spínati í eldföstu móti

Fiskréttur

Trufflulúða

Lúða í silkimjúkri trufflumarineringu með sveppum, lauk og spínati. Fljótleg og bragðmikil veislumáltíð sem tekur aðeins örfáar mínútur að elda.

Framboð

Hafðu samband um verð og framboð í búðinni.

Eldun

Ofn
180°C · 15–20 mín.
Loftsteikingarpottur
12–15 mín.
Spyrja um framboð
Teriyaki lax með sesamfræjum í eldföstu móti

Fiskréttur

Teriyaki lax

Lax í bragðgóðri teriyaki-sósu, toppaður með sesamfræjum. Einföld og vinsæl máltíð þar sem sætt og salt teriyakibragðið undirstrikar ferskleika laxins. Tilvalinn réttur fyrir annasama daga.

Verð

Fyrir tvo · 600 g
3.650 kr.
Fyrir fjóra · 1 kg
5.850 kr.
Fyrir sex · 1,5 kg
8.400 kr.

Eldun

Panna eða grill
Best
Ofn
180°C · 10–12 mín.
Loftsteikingarpottur
8–10 mín.
Panta á Pikkoló
Gyros langa með fetaosti, tómötum og spínati í eldföstu móti

Fiskréttur

Gyros langa

Langa í grískri marineringu með döðlum, fetaosti, kirsuberjatómötum, perlulauk og spínati. Bragðmikill og ferskur fiskréttur með Miðjarðarhafsívafi, þar sem sætt bragð af döðlum blandast fetaosti og fersku grænmeti.

Gott með: kartöflum eða hrísgrjónum.

Verð

Fyrir tvo · 600 g
2.900 kr.
Fyrir fjóra · 1 kg
4.650 kr.
Fyrir sex · 1,5 kg
6.670 kr.
Panta á Pikkoló
Þorskur með papriku, steinselju og kirsuberjatómötum í eldföstu móti

Fiskréttur

Papriku & steinseljuþorskur

Ferskur þorskur marineraður í steinselju, papriku, kirsuberjatómötum, ögn af hvítlauk og góðri kryddblöndu. Léttur og ljúffengur fiskréttur fyrir alla fjölskylduna, fljótlegur og auðveldur í eldun.

Gott með: kartöflusmælki, beint í ofninn.

Verð

Fyrir tvo · 600 g
2.980 kr.
Fyrir fjóra · 1 kg
4.770 kr.
Fyrir sex · 1,5 kg
6.850 kr.
Panta á Pikkoló
Ýsa í kókos- og karrýsósu í eldföstu móti

Fiskréttur

Ýsa í kókos- og karrý

Einstaklega bragðgóður fjölskylduréttur með mjúkri og mildri kókos- og karrýsósu. Fljótlegur og þægilegur í eldun og hentar jafnt hversdags sem um helgar.

Eldun: tilvalinn í ofninn eða loftsteikingarpottinn.

Verð

Fyrir tvo · 600 g
2.750 kr.
Fyrir fjóra · 1 kg
4.400 kr.
Fyrir sex · 1,5 kg
6.330 kr.
Panta á Pikkoló
Plokkfiskur í eldföstu móti með rúgbrauði

Fiskréttur

Plokkfiskur

Ekta klassískur plokkfiskur eins og amma gerir. Einfaldur og góður heimilismatur, tilbúinn í ofninn.

Gott með: volgu rúgbrauði og smjöri.

Verð

Fyrir tvo · 600 g
2.770 kr.
Fyrir fjóra · 1 kg
4.430 kr.
Fyrir sex · 1,5 kg
6.370 kr.

Eldun, miðað við 1 kg

Ofn
15–20 mín.
Loftsteikingarpottur
180°C · 12–15 mín.
Panta á Pikkoló

Ferskur fiskur

Fersk bleikjuflök með sítrónusneiðum

Ferskur fiskur

Bleikjuflök

Fersk og ljúffeng bleikjuflök sem henta fullkomlega á grillið, pönnuna eða í ofninn. Mildur og safaríkur fiskur. Íslenskt gæðahráefni.

Gott með: fersku salati, kartöflum eða grænmeti.

Framboð

Hafðu samband um verð og framboð í búðinni.

Spyrja um framboð
Ýsuflak á diski með sítrónu og rúgbrauði

Ferskur fiskur

Ýsuflök

Klassísk ýsuflök, ekta heimilismatur sem hefur verið á borðum Íslendinga kynslóð fram af kynslóð. Fersk ýsa sem auðvelt er að elda.

Gott með: kartöflum, smjöri og rúgbrauði.

Verð

Fyrir tvo · 600 g
3.370 kr.
Fyrir fjóra · 1 kg
5.390 kr.
Fyrir sex · 1,5 kg
7.750 kr.

Soðin ýsa

Látið vatn sjóða, saltið létt og lækkið hitann. Sjóðið ýsuna við vægan hita í 6–8 mínútur eða þar til hún er tilbúin.

Panta á Pikkoló

Meðlæti

Bættu meðlæti við pöntunina á Pikkoló: ferskt hrásalat, rótargrænmeti eða rúgbrauð frá Brikk.

Pikkoló

Svona virkar Pikkoló

Nú getur þú pantað uppáhaldsfiskinn þinn og fiskrétti og sótt í næstu Pikkolóstöð.

  1. Pantaðu fyrir miðnætti

    Pöntunarfrestur er til miðnættis daginn fyrir afhendingu.

  2. Tilbúið fyrir kl. 16:00

    Allar pantanir eru tilbúnar til afhendingar fyrir kl. 16:00, alla virka daga.

  3. Sæktu með SMS-kóða

    Þú færð SMS með aðgangskóða um leið og pöntunin er klár og sækir þegar þér hentar.

  • Afhendingarstöðvar
  • Hæðarsmári
  • Vatnsmýri
  • Hlemmur
  • Breiddin
  • Háaleiti