20% afsl. af öllum fisk
Við höfum vísað verðbólgunni á dyr og bjóðum 20% afslátt af öllum fisk og fiskréttum út apríl. Tilboðið gildir milli kl. 10 og 14 alla virka daga.
Nýttu tækifærið og gríptu með þér ljúffengan hádegis- eða kvöldmat. Ferskur fiskur og girnilegir fiskréttir eins og þeir gerast bestir.
Vantar meðlæti? Ekkert mál! Kartöflur, rúgbrauð, sósur og allt sem þarf með.
Réttur vikunnar
Réttur vikunnar að þessu sinni er fersk landeldisbleikja í mildri sítrónu- og kóríandermarineringu.
Léttur og sumarlegur fiskréttur sem er fljótlegur í eldun og hentar frábærlega fyrir alla fjölskylduna. Tilbúinn á örfáum mínútum á grillinu, í ofni eða air fryer.
Með réttinum mælum við með kartöflumixi, smælki með rauðlauk og sveppum ásamt heimagerðum köldum sósum.